Þrífaraveisla!
Jahérna hér og jæja já. Hverjum hefði dottið þetta í hug? Tíundu þrífararnir orðnir að veruleika og í tilefni þess hef ég ákveðið að birta alla þrífaranna hingað til! Hvorki meira né minna.
Ég er búinn að föndra svolítið hérna í skólananum og þið fáið alla þrífaranna á einu bretti, þeir nýjustu eru neðst! Smellið á linkinn til að sjá myndina!
Gjörðisvovel:
SMELLIÐ HÉR!
Ég vil einnig halda smá leik í tilefni tímamótanna, smá svona kosningu. Hver sem commentar fær þrjú atkvæði til að kjósa sýna uppáhalds þrífara. Þið verðið einnig að taka fram í hvaða sæti þrífararnir eru hjá ykkur. Þið megið einnig segja afhverju þið kjósið svona, en þess þarf ekkert. Ég kem með dæmi hérna (dæmi sem telur reyndar því ég hef líka kosningarrétt!):
1. #2 - Hvað er fallegra en fólk að bora í nefið?
2. #8 - Aðalega vegna vinnunar sem það tók að finna 5 hálf nakta karlmenn, tvisvar!
3. #6 - Fær mitt atkvæði þar sem ég sjálfur er á þeim, og kalli á þakinu!
Svona virkar þetta semsagt! Hér koma svo nokkar skemmtilegar staðreyndir um þessa þrífara!:
Í þessum 10 þríförum eru:
- 30 myndir
- 44 persónur
- 36 karlmenn
- 1 kvennmaður
- 1 fíll
- 1 tígrisdýr
- 1 landakort
- 28 raunverulegar persónur
- 6 leiknar persónur
- 9 teiknaðar persónur
- 15 persónur sem ég hef hitt
- 17 Íslendingar
- og margt margt fleira!
Með gleðitár á kinn
Almarr













































