afmæli, reykjavík og shortcut
jæja er ekki löngu kominn tími til þess að setja niður nokkur orð hérna? Svosem nóg búið að gerast til að blogga um en einhverra hluta vegna hef ég ekki nennt að skrifa neitt fyrr en nú (í náttúrufræði tíma)
Það sem kannski stendur upp úr síðan síðast er að ég átti afmæli síðasta laugardag. Já haldiði að kallinn sé ekki orðin átján. Nú má ég gera fullt af hlutum, t.d.
fara í Sjallann
fara á Oddvitann
fara í spilakassa
kaupa bleikt og blátt
og margt margt fleira
Afmælidagurinn var nú kannski ekki uppá marga fiska, vaknaði í Reykjavík og morgunmaturinn var á Salatbarnum. Spilaði svo leik gegn Keflavík sem fór ekki alveg sem skildi. Kíkti svo á McDonalds þar sem afgreiðslustúlkan gaf mér EKKI frían McFlurry. Svo á leiðinni heim ætlaði Ingvi driver að vera svoooo sniðugur:
Þegar við vorum sirka 2 mínútur frá Blönduós ákvað hann að taka "shortcut". Hann beygði semsagt af þjóðveginu og var svaka ánægður með sjálfan sig. Þegar hann hafði keyrt í einhverja stund áttaði hann sig svo á því að hann var villtur. Skúli vildi stoppa á bóndabæ og spurja til vegar en Ingvi tók það ekki í mál. Við keyrðum því áfram þar til við sáum bæjarljós. Í vonleysi okkar og sjálfsblekkingu vonuðumst við eftir því að þarna sæum við Varmahlíð en í ljós kom að við höfðum tekið hálftímarúnt bara til að enda í Blönduós. Semsagt klassa shortcut hjá Ingva...
Ákvað svo að skella inn þríförum hérna sem tengist sögunni svolítið. Fyrsta myndin er kort af leiðinni hans Ingva, þið sjáið að þetta er álíka gáfulegt og að taka einn eyjarfjarðahring þegar maður kemur í bæjinn austanmegin að. Næsta er fílsraninn og sú þriðja er hakan á Jay Leno. gjöriðisvovel!!
Endilega segið hvað ykkur finnst um Ingva, þrífarana og óskið mér til hamingju með sjálfstæðið...
Kveðja.
Mr. Ormarsson
|