10. nóvember 2006

Trabant

Áður en ég byrja þá vil ég benda á að ég veit að ég lofaði myndum. Ég bara nenni ekki að setja þær inn strax. So sorry.

En já vá ástæðan fyrir að ég sest með tölvuna við hönd og blogga er sú að ég er ástfanginn. Ekki af kvennmanni, ekki einu sinni af karlmanni heldur af mörgum karlmönnum. Trabant er ástin, hljómsveitin ekki sjálfrennireiðin. Ég var ekkert að uppgvöta núna hvað þetta er frábær hljómsveit, nei ég held ég hafi verið að uppgvöta hvað þetta er fáránlega góð hljómsveit.

Flestir sem heyra Trabant nefnda og hafa ekki kynnt sér hana hugsa strax um lagið Nasty Boy eða Filthy Duke remixið af lagi þeirra One en þrátt fyrir ágæti þeirra er nú komið enn betra lag.

Þeir sem ekki vissu var að koma út plata með lögum Megasar flutt af landsþekktum flytjendum eins og KK, Pöpunum, Baggalút, Hjálmum og meira segja MA-vininum Páli Óskari (með hjálp hörpuleikarans Moniku). En eitt lag sker sig þó útúr þessu vegna gæða sinna, lagið Björt Ljós Borgarljós í flutningi áðurnefndra Trabant manna er brillíant. Vá. Ég skal fúslega viðurkenna að ég hef lítið sem ekkert hlustað á Megas og veit ekkert hvort að þetta er eitthvað líkt hans útgáfu eður ei en brillíant er það.

Lagið er svolítíð ólíkt Nasty Boy og One remixinu, frekar í líkingu við uppranlegu One útgáfuna og þó. Það er ekki fjörugt, krafturinn er kannski ekki gífurlegur, í raun er ég viss um að flestir eigi eftir að hata það. Sérstaklega eftir að ég hef hækkað vonir þeirra töluvert eftir þessi skrif en einhverra hluta vegna elska ég þetta lag. Það er heilar 9 mínútúr, og á þessum 9 mínútum er nokkurnveginn það sama í gangi allan tímann, en þetta er fjandi góðar 9 mínútur. Ég meina mér hlítur að finnast þetta gott lag víst ég tileinka heilu bloggi því.

Áður en ég hætti þá ætlast ég til að þið náið ykkur í lagið, hvort sem þið gerið það ólöglega eða löglega, og ýtið svo á comment þarna niðri og segið skoðun ykkar. Mér er skítsama þótt þið hatið lagið, þið aflið ykkur ekkert inn vinsældarstigum bara með því að vera sammála mér, segið það sem ykkur finnst! Og ég vil ekki fá að sjá comment sem segja frá einhverju öðru en laginu, nema það sé eitthvað merkilegt. Ekkert "gott blogg, sé þig síðar" comment takk fyrir! Eina undantekningin er Baldvin sem hefur aflað sér rétti til að skrifa um hvað sem er í comment!

Ég vil svo benda á að ég er ekki að gera lítið úr hinum artistunum á plötunni, Hjálmar, KK og Baggalútur eiga tildæmis fínustu lög þarna. Trabant bara eru aðeins betri!

Með kveðju eftir alltof langt blogg um ekki neitt
Almarr


powered by performancing firefox