Sé ég tvöfalt?
Virðulegi forseti, elskulegu vinir, kærkomnu ættingjar og aðrir viðstaddir
Enn á ný kem ég með ferska þrífara hér á síðuna. Í þetta skiptið eru þetta í rauninni tvöfaldir þrífarar þar sem tveir aðilar eru á hverri mynd en þetta eru frá vinstri til hægri: Kassi og Bassi, knattspyrnuhetjur og partýdýr, Steini og Olli, grínistar og svart/hvítir, og Mario og Luigi, tölvuleikja og kvikmyndastjörnur.
Annars er allt gott að frétta hér á bænum. Er að fara suður eftir klukkutíma og svo mun í fyrsta skiptið á ævi minni gista í Njarðvík. Spennandi það!
Vil svo þakka öllum sem ég hitti síðastliðið laugardagskvöld fyrir skemmtilegt kvöld. Klikkað partý hjá Kassa sem á heiður skilið fyrir það. Held samt að maður kvöldsins hafi verið Bassi! Hann að vísu veit sennilega ekki afhverju sjálfur en það er aukaatriði =p
En endilega commentið á þrífaranna! Furðufuglar þar á ferð og þótt að það sé kannski ekki mikill svipur milli manna er ákveðinn "fílingur" á öllum myndunum. Eða hvað finnst ykkur?
Kveðja
Almarr - Ég klippi og ég raka menn (tileinkað Dolla)
|