long time no blog
Já svolítið svona langt síðan ég lét síðast í mér heyra! Enda fátt markvert búið að gerast svona í kringum prófatíð og allt það. En núna er hið margumtalaða MA frí búið og brjáluð önn að fara að byrja! 42 tímar í viku... 20 einingar! Að maður skuli leggja þetta á sig. Svo æfingar 5 sinnum í viku plús heimalærdómur (hehe *hóst*). Ég veit ekki hvar ég á að finna tíma í allt hitt sem ég ætlaði að gera á þessu ári!
En nóg um skólann... reyndar er ekki um neitt annað að tala. Ekkert að gerast, fór reyndar suður síðustu helgi til að knattspyrnast eitthvað. Lenti svo í því að vera veðurtepptur fyrir sunnan í heila 2 klukkutíma, sumir reyndar sem áttu flug 9 um morgunin komust ekki fyrr en hálf 6 heim þannig að ég er ekki mikið að kvarta!
En já maður! Íslenska landsliðið í handbolta, djöfull eru þeir næstum því að meika það þarna úti í gamla landinu (ég átti semsagt heima útí Sviss)! Unnu rússnenska björnin í gær og rétt klúðruðu þessu á móti Króutum áðan! Gad dem it sko. Klúðruðu sókn 6 á móti 4 þegar mínota var eftir og tvemur mörkum undir, mætti halda að Dagur væri kominn aftur í liðið!
en nóg í bili, nýjir þrífarar fara að koma innan skamms!
Bless bless
almarr
|