2. maí 2006

Ligeglad

“Ja hérna hér…. Ætlar Almarr að blogga?” kann margur að spyrja sig. Og svarið er víst já! Ég veit ekki hversu merkileg þessi skrif mín verða eða hvort einhver mun lesa þetta sér til dægrastyttingar en hvað um það, ég hef ekkert betra að gera!

Það er að vísu skrítið að ég hafi ekki bloggað fyrr… ætlaði að gera svaka skemmtilegt blogg eftir Danmerkur ferðina sem ég fór í með fótboltanum en einhvernveginn tafðist það alltaf… núna man ég ekkert hvað við gerðum þar en í grófum dráttum var það einhvernveginn svona: Fótbolti, borða, fótbolti, borða, þythokkí, sofa, fótbolti, kani, borða, fótbolti, psp, borða, þythokkí, idiot, borða sun lolly….. Nema einn daginn spiluðum við æfingaleik við varalið Herfolge og tókst okkur að vinna þá 1-0 þó að við hefðum reyndar átt að vinna þá mun stærra!!

Það sem stóð sennilega helst upp úr í ferðinni var Kaupmannahafnarferðin.. Þangað fórum við fylgtu liði og lögðum Strikið og Tívolí undir okkur! Ég, Svenni og Bassi þrömmuðum búðirnar eins og verstu konur og keyptum upp lagerinn í þeim flestum, fórum svo í Tívolí og tókum vel á því: 4 sinnum í fallturninn, 2 sinnum í einhvern brjálaðan kolkrabba, tvisvar í rússíbana og svo einu sinni í eitthvað skíta töfrateppi. Semsagt klikkaður dagur

Svo gerðist sá víðheyrði atburður að elstu kallarnir í flokknum voru með strákslæti og fíflaskap og ákváðu að sína þeim yngri hvernig ekki á að hafa sér. Þeir klipptu Nóra og Magga Blö(nt). Aron, Steini Gunn, Steinþór, Steini Mý, Símon og Svenni fengu svo fallegt tattú á hálsinn sem þeir þurftu að bera í Köben öllum hinum til mikillar ánægju. En þrátt fyrir að ég héldi að ég væri sloppinn við allt saman þá tókst þeim að plata mig útí vitleysu. Eins og flestir vissu kom ég heim með rautt hár og var ekki sá eini. Ég, Steini Mý, Símon og Steinþór fengum ókeypis litun og skörtuðum nýja litnum á síðasta kvöldinu. En þegar við ætluðum að skola “skolið” úr hárinu kom í ljós að eitthvað höfðu þeir gömlu gabbað okkur því helvítis liturinn fór ekkert úr… ég þurfti því að spranga um skólann í eina viku með hár eins og Kalli á þakinu…

En vá þetta er orðið allt of langt!!! Myndir úr ferðinni munu koma síðar og ég get lofað nokkrum góðum þaðan… Vona bara að einhver sé enn að lesa, ef svo endilega gefðu þér þá tíma til að skella inn nokkrum athugasemdum!

Kveðja: nýjasti tsjokkóinn