21. maí 2006

Afríka Papríka all the way

Í tilefni júróvisíón ákvað ég að blogga. Ég er svo duglegur að blogga að það hálfa væri ekki neitt. Rétt upp hönd annars sem sáu úrslitin, og niður með hendina þau sem héldu ekki með Finnlandi. Ef þið eruð ennþá með aðra (ja eða báðar) endur uppí lofti þá eruð þið flott. Djös fokking snilld að skrímslin hafi tekið þetta, Mr. Lordi og hljómsveit hans voru þau einu með viti þarna. Fyrir utan náttúrulega Litháen og “We are the Winners” gengið, þeir voru sannir sigurvegarar!

Svo líka lagið (man ekkert hvaða lag eða hverjir það voru) með besta rím sem komið hefur í Eurovision. Veit ekki hvort fólk tók eftir þessu en við Erla sys pissðuðum á okkur þegar söngkonan söng: “Africa Paprica”. Hún átti heiður skilin fyrir að þora að syngja þetta! Eins með Rússann, hann komst í annað sætið bara á hárgreiðslunni! Mæli með að allir safni í svona múllett eins og einhver kallaði það... bara röff töff!

Annars er fínt að frétta hér af bænum, helgin búin að vera stórkostleg... búinn að sofa hálfan daginn og horfa á stórskemmtilega þætti hinn helminginn, er hægt að biðja um meira? Skellti mér að vísu á fótboltaæfingu á laugardaginn og ákvað að vera með svona til tilbreytingar. (Fyrir þá sem ekki vissu þá er ég víst meiddur í nára og hef lítið sem ekkert verið með). Gaman að segja frá því að þetta var öflug endurkoma hjá mér, setti tvö þrusu mörk og svona, verð nú vonandi með í næsta leik sem er gegn fram næsta föstudag hérna heima á akureyrarvelli! Allir að koma á þennan toppslag og hvetja gula!

Ég ákvað svo að skella inn eins og einni mynd með þessu. Smá kaldhæðni í gangi en við Sævar lentum á eftir þessum bíl einn góðan veðurdag. Ég tók því eina væna símamynd þar sem okkur fannst þetta sniðugt, ég er samt ekkert að gera lítið úr hjólastólanotendum. Okkur bara fannst þetta kúl



Svo fer nú að styttast í nýja þrífara, ég fer að finna eitthvað gott! Veit að allir eru að missa sig úr spenningi...

Pís át
Almarr