Góðar fréttir
JESS!!
við erum komnir áfram, u-19 liðið þ.e.a.s, JESS!!! Til að gera langa sögu stutta þá lentum við í þriðja sæti í riðlinum okkar og fengum þær fréttir að aðeins eitt þriðjasætis lið kæmist áfram í milliriðla og eins og var værum við þar efstir í flokki. Nú eftir að hafa beðið alltof lengi var síðasti riðillinn að klárast og viti menn: VIÐ ERUM ÁFRAM!!!!
Ég er í skýunum, sjöunda himni og yfir mig kátur. Þetta lið á svo ekkert annað skilið enn að komast áfram, alltof góðir strákar til annars.
En allavega: VIÐ ERUM SVO FOKKING ÁFRAM!!!! JESS
Myndirnar sem ég var búinn að lofa ykkur koma nú ekki strax, en þær verða ennþá skemmtilegri fyrir vikið. Þær eru jú af liðinu sem KOMST ÁFRAM!
En ég kveð að sinni, matarboð og læti í gangi.
Almarr (tussuglaður)
p.s. Já Baldvin það væri sannur heiður ef þú myndir nota commenta síðuna hjá mér til að blogga. Þetta er líka hagnýtt; Aðdáðendur mínir myndu auðveldlega finna bloggið þitt og aðdáðendur þínir kæmust ekki hjá því að lesa færslur mínar, skil ekki að fleirum hafi ekki dottið þetta í hug!
p.p.s. VIÐ KOMUMST ÁFRAM!!!
|