ein bisschen bloggchen
Já hmm... ætli maður verði ekki að drita niður nokkrum orðum aftur hérna svo fólk verði ekki of óþolinmótt
Samt eiginlega ekkert að frétta þannig að þetta verður meira svona hugleiðingar og eitthvað rugl bara...
Ég var að pæla um daginn í svona klukki á bloggum. Hvernig í ósköpunum verður þetta til??? Og ég fann svarið: þegar einhverjum leiðist alveg rosalega og hefur ekkert að gera nema að blogga en veit ekkert um hvað hann á að blogga, þá semur hann svona klukk (Fyrir þá sem ekki vita er ég að tala um svona spurningar sem fólk svarar á bloggum). Og þar sem þetta er eiginlega tilfellið hjá mér núna ákvað ég að semja svona klukk, verður líklegast ekkert frábært en wtf (nörda mál fyrir hver gremillinn) og svo svara ég þessu bara líka... Gjörsovel:
1. Ef þú hefðir fundið andalampan í Aladín, hefðirðu frelsað andann með síðustu óskinni?
Njaaa, efa það stórlega, ekki á hverjum degi sem maður fær 3 óskir bara sísvona! Samt kannski ef hann hefði verið mjög góður við mig...
2. Nirvana eru?
Eilífir
3. Ef þér yrði boðið hlutverk í leiknu útgáfunni af Lion King, hvern myndirðu leika og hví?
Ætli ég myndi ekki leika Múfasa, yrði held ég ágætis ljón...
4. Simpsons, Futurama, South Park eða Family Guy?
Futurama, Family Guy samt inná milli
5. Lífið er?
Dans á rósum
6. Bubbi eða KK?
KK klárlega
7. Hvaða vídeo leiga er að gera það núna?
Video Barinn
8. Miðvikudagar eru?
þreittir
9. Þessi spurningarlisti er?
Asnalegur:p
10. Hverja ætlar þú að klukka?
Svenna, Palla, Ingu Lind, Erlu, Lindu, Ingvar og Egil Bakkus
Vá hvað þetta tókst ekki nærri því vel eins og við var að búast, samt nokkrar góðar þarna inná milli. Ég bæti upp fyrir þessa færslu með þríförum innan skamms, ekkert minna sem dugir held ég!
En efnafræðipróflestur bíður mín
Písát
Almarr
|