28. maí 2006

Þrífarar númer 7

Jæja þá er komið að einn einum þríförunum... númer 7 í röðinni, alveg eins og Cantona var númer og Beckham áður en hann fór til Real... en svona eru þeir víst:

Maggi Blöndal, rauðhærður og massaköggull, Jack Nicholson, jóker og leikari og Tony Blair, forsætisráðherra og fyrirsæta! Voila:



Þeir sem skoða þetta eru skildugir til að commenta... sama hverjir þið eruð og hvað þið eruð að gera, gefið ykkur tíma til að segja hvað ykkur finnst og hvað betur mætti fara! :)

kveðja... Almarr Posted by Picasa

26. maí 2006

Nokkrar Danmerkurmyndir

Ég ákvað að skella inn nokkrum myndum frá dk! Koma fleiri seinna

Við Bassi í góðu flippi

Ég varð þreittur í rútunni

Svenni eitthvað að flippa

 Posted by Picasa

Loksins aftur þrífarar!

Já svolítið síðan þeir komu síðast en vegna ótal eftirspurna (svona sirka 3) ákvað ég að finna einhverja góða... það vill nú svo skemmtilega til að þetta er í fyrsta aksiptið sem ég sjálfur kem í þrífaranna en þeir eru svohljóðandi:
Almarr Ormarsson, MA-ingur og KA-ingur, Matthew Bellamy, söngvari og meira til og Kalli á þakinu, heimsins mesti prakkari... enjoy



Allir svona skemmtilega rauðhærðir og flottir... þetta voru erfiðir tímar hjá mér en ég lifði þetta af og er nú í fyrsta skipti á ævi minni dökkhærður, gaman að því!

Hef þetta ekki lengra í bili, endilega commentið og segið hvað ykkur finnst um þrífarana!

kv. Almarr

21. maí 2006

Afríka Papríka all the way

Í tilefni júróvisíón ákvað ég að blogga. Ég er svo duglegur að blogga að það hálfa væri ekki neitt. Rétt upp hönd annars sem sáu úrslitin, og niður með hendina þau sem héldu ekki með Finnlandi. Ef þið eruð ennþá með aðra (ja eða báðar) endur uppí lofti þá eruð þið flott. Djös fokking snilld að skrímslin hafi tekið þetta, Mr. Lordi og hljómsveit hans voru þau einu með viti þarna. Fyrir utan náttúrulega Litháen og “We are the Winners” gengið, þeir voru sannir sigurvegarar!

Svo líka lagið (man ekkert hvaða lag eða hverjir það voru) með besta rím sem komið hefur í Eurovision. Veit ekki hvort fólk tók eftir þessu en við Erla sys pissðuðum á okkur þegar söngkonan söng: “Africa Paprica”. Hún átti heiður skilin fyrir að þora að syngja þetta! Eins með Rússann, hann komst í annað sætið bara á hárgreiðslunni! Mæli með að allir safni í svona múllett eins og einhver kallaði það... bara röff töff!

Annars er fínt að frétta hér af bænum, helgin búin að vera stórkostleg... búinn að sofa hálfan daginn og horfa á stórskemmtilega þætti hinn helminginn, er hægt að biðja um meira? Skellti mér að vísu á fótboltaæfingu á laugardaginn og ákvað að vera með svona til tilbreytingar. (Fyrir þá sem ekki vissu þá er ég víst meiddur í nára og hef lítið sem ekkert verið með). Gaman að segja frá því að þetta var öflug endurkoma hjá mér, setti tvö þrusu mörk og svona, verð nú vonandi með í næsta leik sem er gegn fram næsta föstudag hérna heima á akureyrarvelli! Allir að koma á þennan toppslag og hvetja gula!

Ég ákvað svo að skella inn eins og einni mynd með þessu. Smá kaldhæðni í gangi en við Sævar lentum á eftir þessum bíl einn góðan veðurdag. Ég tók því eina væna símamynd þar sem okkur fannst þetta sniðugt, ég er samt ekkert að gera lítið úr hjólastólanotendum. Okkur bara fannst þetta kúl



Svo fer nú að styttast í nýja þrífara, ég fer að finna eitthvað gott! Veit að allir eru að missa sig úr spenningi...

Pís át
Almarr

5. maí 2006

Hver gremillinn...

Jæja krakkar, hvað segið þið? Ég var að velta því fyrir mér afhverju tölvunördar eru svona enskuvæddir, hví ekki að íslenska allt heila klabbið og halda fegurð tungumálsins í okkur! (Núna eruð þið að velta fyrir ykkur á hverju ég er en það er bara kók og lítill svefn sem spilar inn í, einnig það að ég hef ekkert að gera þessa stundina svo ég ætla að athuga hversu skondinn pistil ég get skrifað á sem stystum tíma, og þetta er að verða einhver lengsta sviga athugasemd í heimi!) Ég fór því að velta fyrir mér alls konar nördastyttingum og ákvað að íslenska þær mér og öðrum til gagns og gamans, í raun veit ég ekkert hvort þetta verði einhverntímann byrt en það verður að hafa það!
Hefjum leikinn! (þið áttið ykkur á reglunum þegar þið byrjið að lesa)

lol (laughing out loud) – hu (hlæ upphátt)
wtf (what the fuck) – hv (hver gremillinn)
brb (be right back) – kes (kem eftir smá)
mp( mom and dad) – fm (faðir og móðir)
rofl (rolling on flour laughing) – vueoaah (veltandi um eins og auli af hlátri)
np (no problem) – em (ekkert mál)

svo á að breyta svona enskum frægum setningum yfir í íslensku:

who gives a shit – hver gefur skít
blow me – blástu á mig
screw this – skrúfaðu þetta
take it easy – taktu því létt
fuck you – farðu í reiðtúr!
zip it – renndu því

og svona mætti lengi telja. Þið sjáið strax að samtöl unglinga yrðu miklu skemmtilegri áheyrnar við svona breytingar og msn og sms samtöl yrðu aðgengilegri og fróðlegri.

sjitt hvað mér leiðist... vona bara að einhverjum hafi fundist þetta áhugaverð lesning og sé alveg vueoaah, annars getiði bara skrúfað þetta og farið í reiðtúr, blásið á mig í leiðinni og þetta verður em. HU

Ef þið skilduð þennan teksta ekki verðið þið að lesa allt bloggið aftur... og aftur... og aftur...

Kveðja: þreitti kókistinn

2. maí 2006

Ligeglad

“Ja hérna hér…. Ætlar Almarr að blogga?” kann margur að spyrja sig. Og svarið er víst já! Ég veit ekki hversu merkileg þessi skrif mín verða eða hvort einhver mun lesa þetta sér til dægrastyttingar en hvað um það, ég hef ekkert betra að gera!

Það er að vísu skrítið að ég hafi ekki bloggað fyrr… ætlaði að gera svaka skemmtilegt blogg eftir Danmerkur ferðina sem ég fór í með fótboltanum en einhvernveginn tafðist það alltaf… núna man ég ekkert hvað við gerðum þar en í grófum dráttum var það einhvernveginn svona: Fótbolti, borða, fótbolti, borða, þythokkí, sofa, fótbolti, kani, borða, fótbolti, psp, borða, þythokkí, idiot, borða sun lolly….. Nema einn daginn spiluðum við æfingaleik við varalið Herfolge og tókst okkur að vinna þá 1-0 þó að við hefðum reyndar átt að vinna þá mun stærra!!

Það sem stóð sennilega helst upp úr í ferðinni var Kaupmannahafnarferðin.. Þangað fórum við fylgtu liði og lögðum Strikið og Tívolí undir okkur! Ég, Svenni og Bassi þrömmuðum búðirnar eins og verstu konur og keyptum upp lagerinn í þeim flestum, fórum svo í Tívolí og tókum vel á því: 4 sinnum í fallturninn, 2 sinnum í einhvern brjálaðan kolkrabba, tvisvar í rússíbana og svo einu sinni í eitthvað skíta töfrateppi. Semsagt klikkaður dagur

Svo gerðist sá víðheyrði atburður að elstu kallarnir í flokknum voru með strákslæti og fíflaskap og ákváðu að sína þeim yngri hvernig ekki á að hafa sér. Þeir klipptu Nóra og Magga Blö(nt). Aron, Steini Gunn, Steinþór, Steini Mý, Símon og Svenni fengu svo fallegt tattú á hálsinn sem þeir þurftu að bera í Köben öllum hinum til mikillar ánægju. En þrátt fyrir að ég héldi að ég væri sloppinn við allt saman þá tókst þeim að plata mig útí vitleysu. Eins og flestir vissu kom ég heim með rautt hár og var ekki sá eini. Ég, Steini Mý, Símon og Steinþór fengum ókeypis litun og skörtuðum nýja litnum á síðasta kvöldinu. En þegar við ætluðum að skola “skolið” úr hárinu kom í ljós að eitthvað höfðu þeir gömlu gabbað okkur því helvítis liturinn fór ekkert úr… ég þurfti því að spranga um skólann í eina viku með hár eins og Kalli á þakinu…

En vá þetta er orðið allt of langt!!! Myndir úr ferðinni munu koma síðar og ég get lofað nokkrum góðum þaðan… Vona bara að einhver sé enn að lesa, ef svo endilega gefðu þér þá tíma til að skella inn nokkrum athugasemdum!

Kveðja: nýjasti tsjokkóinn