Kæru landsmenn nær og fjær
Ykkar maður er mættur aftur og heitari en nokkru sinni fyrr. Þið trúið vart eigin augum er þið rennið yfir næstu línur. Í dag hef ég ákveðið að fjalla aðeins um ykkar lang uppáhalds hljómsveit. Já dömur mínar og herrar, Wai Wai mun vera umfjöllunarefni mitt í dag. Ég veit að ég get alls ekki gert öllum til geðs en ég mun samt sem áður reyna að koma inn á flest það sem almúginn vill vita um þetta stórband. Gjöriðisvovel!

WaiWai var stofnað af tveimur félögum í kringum jólin 2004. Báðir höfðu þá verið að leika sér með Ukulele (Hljóðfæri frá Hawaii, líkist gítar en þó mun minna) og vegna sameiginlegs áhuga ákváðu þeir að stilla hljóðfærum sínum saman. Þeir sáu strax að hljómurinn var engu líkur, þessu var vart lýst með orðum. Ekki nóg með að hæfni þeirra á þessu sviði var á undan flestum samtímamönnum heldur smellpössuðu grípandi melódíur Almars við ljúfa hljóma Sævars.
Þeir létu þó lítið á sér bera í fyrstu og aðeins þeirra nánustu fengu að heyra það sem þeir höfðu upp á að bjóða. En þegar tilkynnt var í skóla þeirra beggja að í bráð væri hljómsveitarkeppni fyrir nemendurna sáu þeir tækifæri til að sýna heiminum það sem hann átti skilið. Þeir stigu á stokk og gífurleg fagnaðarlæti brutust út. Fólkið í salnum virtist numið af þokka þeirra og glæsileika. Þeir létu nokkur vel valin orð falla sem féllu heldur betur í kramið á fjöldanum. En allt þagnaði þegar tónarnir brutust út.
Wai Wai hafði undirbúið syrpu sem samanstóð af vel völdum lögum af þeim sjálfum. Smellir úr öllum heimsálfum fengu að njóta sín á áður óheyrðan hátt. Þeir byrjuðu á Coldplay laginu Clocks sem var seyðandi en um leið nógu grípandi til þess að allir frusu í sætum sínum. Dulin skipting í New Born með Muse kom þær næst og þegar áhorfendur áttuðu sig á þessu leyndi kátínan sér ekki. Franz Ferdinand smellurinn Tell Her Tonight hressti fólk svo við og þegar þjóðlagið Ryksugan á fullu byrjaði ætlaði allt að tryllast. Fólk hreinlega öskraði af spenningi og gott ef að leið ekki yfir nokkra viðstadda. Til þess að hægja aðeins á þessu fór dúóið yfir í Narcotic með þýsku hlýrabolspoppurunum í Liquido og þaðan í rokkslagarann Highway to Hell með AC/DC, að sjálfsögðu byrjuðu síðhærðu strákarnir að "slamma" á þessum tímapunkti og þegar Smoke on the Water með Deep Purple glumdi í eyrum þeirra fauk hárið næstum af í látunum. En Wai Wai voru hvergi nær hættir, öllum að óvörum komu þeir með Sweet Dreams sem flestir þekkja frá meistara Marilyn Manson. Sólóin keyrðu allt um koll og áhorfendur furðuðu sig á leikni jafn merkilegra manna á svona lítil hljóðfæri. Strákarnir tveir sáu þá að allt stefndi í uppþot og ákaðu að róa líðin niður með laginu Somewhere over the Rainbow og féll það að sjálfsögðu vel í kramið.
Þegar lagaveislunni lauk leit allt út fyrir það að kvosin myndi springa. Önnur eins fagnaðarlæti hafa sennilega aldrei heyrst í húsum Menntaskólans á Akureyri og þótt víðar væri leytað. Dúoið ætlaði ekki að komast í búningsherbergi sitt vegna bæna um eiginhandaráritanir og ljósmynda uppstillingar. Og ekki var þessu lokið þarna. Dómnefndin var að sjálfsögðu líka hrifin af atriði þeirra og til að gera ekki aðra öfundsjúka ákváðu þeir að gefa þeim verðlaun fyrir frumleika í stað þess að úrskurða þá besta band kvöldsins. En strákarnir skyldu ráðabrugg þeirra og fóru sáttir heim með 6 lítra af kók og afbragðs dvd filmu.
Það þarf varla að benda fólki á að eftir þetta fyrsta "gigg" þeirra félaga hefur síminn ekki stoppað og þeir eru beðnir um að spila á flest öllum samkomum bæjarins, afmælum, brúðkaupum og árshátíðum svo fátt eitt sé nefnt. Strákarnir láta frægina þó ekki stíga sér til höfuðs og eru, líkt og við hin, ósköp venjulegir skólastrákar á framabrautinni.
Jæja ég vona að ykkur líki þessi umfjöllun, hún er reyndar heldur betur í lengri kantinum en ég gæti sennilega skrifað endalaust um þetta frábæra band. Ég mun svo setja upptökuna af Stiðarvauki (hljómsveitarkeppninni) inn á netið eins fljótt og mögulegt er þannig að allir geta notið þess að hlusta á tímamótaverkið.
Er orðinn alveg hrikalega þreittur í puttonum svo ég kveð að sinni. Endilega commentið og segið hvað ykkur fannst um þetta!