Taka tvö
Jæja kæru lesendur.
Svo virðist sem hin færslan mín hafi ekki komið almennilega. Nema þá titillinn þannig að ég skrifa bara aftur. Vona bara að þetta virki núna.
En já eins og þið sjáið þá er uppáhalds Almarrinn ykkar kominn með svona bloggsíðu. Þetta er kannski ekki þessi "basic" blog síða um mitt daglega líf og djammskap minn. Ég nenni ekki svoleiðis, í staðin ætla ég að reyna að fjalla um mjúsík, heimspekilegar hugleiðingar og annað sem mér dettur í hug. Ég mun þó líka segja ykkur frá mínu merka lífi, hvernig hópverkefnin í skólanum ganga og hvað ég skora mörg mörk á æfingum.
Og fyrir ykkur sem hafið ekki hugmynd um það hver ég er þá ætti að vera komið inn svona "júser prófæl" um mig hér til vinstri. Þar stendur ýmislegt um kappan, hvað ég hlusta á, á hvaða myndir ég horfi og svo framvegis.
Og já fyrir ykkur sem eruð einnig með svona sniðugar (eða ósniðugar) blogsíður endilega póstið link í comment og ég skal setja link hér á þessa síðu. Samt aðeins ef þið setjið link á þessa síðu á ykkar síðu (vá flókið, hringjið bara í vinalínuna ef þið skiljið þetta ekki).
Svo var ég að velta því fyrir mér hvort það væri sniðugt að koma með svona pælingar í lok hverjar færslu, þ.e.a.s. þegar mér dettur eitthvað í hug. Allavega kem ég með eina núna:(ef mér dettur eitthvað í hug)
...eitthvað tómur þessa stundina...
Nei sorry kemur bara næst!
Kveðja... Almarrinn ykkar
|