14. nóvember 2005

Mánudagsmorgun

Ég vil byrja á því að þakka frábærar viðtökur sem þetta blog hefur fengið. Ætli ég verði ekki að fara að auglýsa síðuna betur. Koma mér upp nokkrum svona fastagestum!

En já voðalega er ég glaður núna, er í fjórföldu hádeigishléi þökk sé Ingibjörgu íþróttakennara og Hrefnu enskukennara. Get fengið mér ríkulegan hádeigisverð og bloggað eins og brjálæðingur.

Ætla aðeins að segja ykkur frá því nýjasta í heiminum í dag, eða allavega það nýjasta sem ég var að uppgvöta. Kallast Podcast og þeir sem eru með iTunes ættu að hafa séð þetta þvælast fyrir. En þar sem ég hafði ekkert að gera (í íslenskutíma minnir mig) ákvað ég að skoða þetta aðeins betur og kom í ljós að þetta er bara asskoti sniðugt. Þetta eru semsakt nokkurskonar útvarpsþættir sem hægt er að ná í af netinu. Þú finnur bara eitthvað sniðugt og gerist áskrifandi af þáttunum sem koma svo út vikulega eða svo. Það besta við þetta allt saman er að maður þarf ekki að borga krónu fyrir.

Til að útskýra þetta betur ætla ég að koma með smá dæmi eins og stærðfræðikennarar gera:
Ég fann þætti sem heita NYUB (Not your usual eitthvað) og gerðist áskrifandi af þeim. Nú fæ ég vikulega nýjan þátt með þræl skemmtilegri tónlist. Og ekki þetta venjulega með Justin Timberlake og 50 cent. Nei þarna fæ ég að kynnast nýrri mjúsík sem er bara eins og ég áður sagði mjög svo ljómandi ágæt. Fleiri þættir sem ég er áskrifandi af eru 75 minutes (einnig tónlistarþáttur með indie tónlist), Next Big Hit(tónlist), The Guy Bauer half hour (snilldar húmor, blanda af Freysa á gamla x-inu og Jay Leno) og svo Tom Shillue (uppistandari og allsvakalega fyndinn).

En já núna eru örugglega allir hættir að lesa, mæli samt eindregið með því að þið kíkjið á þetta, sérstaklega þið sem eruð komin með leið á fm957!

Verður ekki meira í bili
Kveðja.. almarr