30. nóvember 2006

Þrífaraveisla!

Jahérna hér og jæja já. Hverjum hefði dottið þetta í hug? Tíundu þrífararnir orðnir að veruleika og í tilefni þess hef ég ákveðið að birta alla þrífaranna hingað til! Hvorki meira né minna.
Ég er búinn að föndra svolítið hérna í skólananum og þið fáið alla þrífaranna á einu bretti, þeir nýjustu eru neðst! Smellið á linkinn til að sjá myndina!
Gjörðisvovel:
SMELLIÐ HÉR!

Ég vil einnig halda smá leik í tilefni tímamótanna, smá svona kosningu. Hver sem commentar fær þrjú atkvæði til að kjósa sýna uppáhalds þrífara. Þið verðið einnig að taka fram í hvaða sæti þrífararnir eru hjá ykkur. Þið megið einnig segja afhverju þið kjósið svona, en þess þarf ekkert. Ég kem með dæmi hérna (dæmi sem telur reyndar því ég hef líka kosningarrétt!):
1. #2 - Hvað er fallegra en fólk að bora í nefið?
2. #8 - Aðalega vegna vinnunar sem það tók að finna 5 hálf nakta karlmenn, tvisvar!
3. #6 - Fær mitt atkvæði þar sem ég sjálfur er á þeim, og kalli á þakinu!

Svona virkar þetta semsagt! Hér koma svo nokkar skemmtilegar staðreyndir um þessa þrífara!:
Í þessum 10 þríförum eru:

  • 30 myndir
  • 44 persónur
  • 36 karlmenn
  • 1 kvennmaður
  • 1 fíll
  • 1 tígrisdýr
  • 1 landakort
  • 28 raunverulegar persónur
  • 6 leiknar persónur
  • 9 teiknaðar persónur
  • 15 persónur sem ég hef hitt
  • 17 Íslendingar
  • og margt margt fleira!
Ég vona að þið gefið ykkur tíma til að commenta og kjósa og vil um leið þakka þeim fjöldamargra sem commentu á síðustu þrífara, danke schön.

Með gleðitár á kinn
Almarr

27. nóvember 2006

Loner Acemale

Jæja, er ekki kominn tími á þrífara? Held það barasta... Eftir jafn glæsilegt myndablogg og síðast þarf að róa menn niður með góðum þríförum. Vil þakka Hannesi kærlega fyrir hjálp við hugmyndasköpun og Einari fyrir hjálp við uppröðun. Einnig vil ég þakka öllum sem commenta! Hinir mega eiga sig...

Þrífararnir núna eru þá svona: Einar, Áskell og Einar Áskell



Jæja, nóg í bili
Sé ykkur
Almarr

22. nóvember 2006

Jæja ég var víst búinn að lofa myndum úr svíþjóðarferðinni! loksins búinn að setja þær inn þannig að ég segi bara njótið!

Dóri og Atli Keeper
Við Moli með hetjunum Bjarna og Rúrik
Við Atli frekar ferskir
Dóri Leikni og Moli
Veit ekkert hvað hún heitir þessi, kom með Emmu vinkonu úr sjoppunni
KR-ingarnir Skúli Jóns, Skúli Jón og Atli. Marco nagar á sér neglurnar fyrir aftan
Logi og Eggert að hössla Emmu
Bjarni Þór Viðarsson, hetjan úr Everton
Æstu herbergisfélagarnir! Logi og Skúli Jóns
Bjarni og Skúli að luma sér á myndina
Markmannsdruslurnar
Halldór með Colgate brosið
Addi og Nóri að pósa í klessu
Moli með sprite, held ég
Skúli og Atli. Skúli fékk líka sprite
Birkir Roommate, og Skúli að troða sér inná
Skúli Jón og Þobbi kallinn úr Víking
Dóri og Logi
Marco Pavlov og Gylfi 13 ára
Moli enn og aftur
Nei! er ekki mynd af Mola hérna, mætti halda að hann ætti þetta blogg
Hér er hins vegar réttur eigandi síðunnar, Marri kaglinn
Rúrik Gísla og Þórður
Gertzstar

Heyrðu svona var það nú. Einhverja hluta vegna á ég enga mynd af Aroni Mall, hinum 13 ára guttanum í ferðinni. Ronni þú verður bara að senda mér eina slíka, hvar varstu meðan ég var að mynda? Varst annars alltaf að sníglast í kringum okkur Mola, oftast í fýlu reyndar ;)

En já vona að þið séuð ánægð með myndirnar eftir þessa löngu bið! Nú megið þið öll commenta aftur, meira segja svona: "lol, gott blogg, cya gamli"

Bæbæ
Ammi

10. nóvember 2006

Trabant

Áður en ég byrja þá vil ég benda á að ég veit að ég lofaði myndum. Ég bara nenni ekki að setja þær inn strax. So sorry.

En já vá ástæðan fyrir að ég sest með tölvuna við hönd og blogga er sú að ég er ástfanginn. Ekki af kvennmanni, ekki einu sinni af karlmanni heldur af mörgum karlmönnum. Trabant er ástin, hljómsveitin ekki sjálfrennireiðin. Ég var ekkert að uppgvöta núna hvað þetta er frábær hljómsveit, nei ég held ég hafi verið að uppgvöta hvað þetta er fáránlega góð hljómsveit.

Flestir sem heyra Trabant nefnda og hafa ekki kynnt sér hana hugsa strax um lagið Nasty Boy eða Filthy Duke remixið af lagi þeirra One en þrátt fyrir ágæti þeirra er nú komið enn betra lag.

Þeir sem ekki vissu var að koma út plata með lögum Megasar flutt af landsþekktum flytjendum eins og KK, Pöpunum, Baggalút, Hjálmum og meira segja MA-vininum Páli Óskari (með hjálp hörpuleikarans Moniku). En eitt lag sker sig þó útúr þessu vegna gæða sinna, lagið Björt Ljós Borgarljós í flutningi áðurnefndra Trabant manna er brillíant. Vá. Ég skal fúslega viðurkenna að ég hef lítið sem ekkert hlustað á Megas og veit ekkert hvort að þetta er eitthvað líkt hans útgáfu eður ei en brillíant er það.

Lagið er svolítíð ólíkt Nasty Boy og One remixinu, frekar í líkingu við uppranlegu One útgáfuna og þó. Það er ekki fjörugt, krafturinn er kannski ekki gífurlegur, í raun er ég viss um að flestir eigi eftir að hata það. Sérstaklega eftir að ég hef hækkað vonir þeirra töluvert eftir þessi skrif en einhverra hluta vegna elska ég þetta lag. Það er heilar 9 mínútúr, og á þessum 9 mínútum er nokkurnveginn það sama í gangi allan tímann, en þetta er fjandi góðar 9 mínútur. Ég meina mér hlítur að finnast þetta gott lag víst ég tileinka heilu bloggi því.

Áður en ég hætti þá ætlast ég til að þið náið ykkur í lagið, hvort sem þið gerið það ólöglega eða löglega, og ýtið svo á comment þarna niðri og segið skoðun ykkar. Mér er skítsama þótt þið hatið lagið, þið aflið ykkur ekkert inn vinsældarstigum bara með því að vera sammála mér, segið það sem ykkur finnst! Og ég vil ekki fá að sjá comment sem segja frá einhverju öðru en laginu, nema það sé eitthvað merkilegt. Ekkert "gott blogg, sé þig síðar" comment takk fyrir! Eina undantekningin er Baldvin sem hefur aflað sér rétti til að skrifa um hvað sem er í comment!

Ég vil svo benda á að ég er ekki að gera lítið úr hinum artistunum á plötunni, Hjálmar, KK og Baggalútur eiga tildæmis fínustu lög þarna. Trabant bara eru aðeins betri!

Með kveðju eftir alltof langt blogg um ekki neitt
Almarr


powered by performancing firefox

3. nóvember 2006

Góðar fréttir

JESS!!

við erum komnir áfram, u-19 liðið þ.e.a.s, JESS!!! Til að gera langa sögu stutta þá lentum við í þriðja sæti í riðlinum okkar og fengum þær fréttir að aðeins eitt þriðjasætis lið kæmist áfram í milliriðla og eins og var værum við þar efstir í flokki. Nú eftir að hafa beðið alltof lengi var síðasti riðillinn að klárast og viti menn: VIÐ ERUM ÁFRAM!!!!

Ég er í skýunum, sjöunda himni og yfir mig kátur. Þetta lið á svo ekkert annað skilið enn að komast áfram, alltof góðir strákar til annars.

En allavega: VIÐ ERUM SVO FOKKING ÁFRAM!!!! JESS

Myndirnar sem ég var búinn að lofa ykkur koma nú ekki strax, en þær verða ennþá skemmtilegri fyrir vikið. Þær eru jú af liðinu sem KOMST ÁFRAM!

En ég kveð að sinni, matarboð og læti í gangi.

Almarr (tussuglaður)

p.s. Já Baldvin það væri sannur heiður ef þú myndir nota commenta síðuna hjá mér til að blogga. Þetta er líka hagnýtt; Aðdáðendur mínir myndu auðveldlega finna bloggið þitt og aðdáðendur þínir kæmust ekki hjá því að lesa færslur mínar, skil ekki að fleirum hafi ekki dottið þetta í hug!

p.p.s. VIÐ KOMUMST ÁFRAM!!!