24. mars 2006

Word prufa

Jæja krakkar...

Ég var að ná í eitthvað svona sniðugt á netinu þannig að ég get bara bloggað beint úr Word! Mjög hentugt (ef þetta virkar þ.e.a.s.) þar sem ég þarf þá ekki að logga mig inn og gera nýjan póst og svoleiðis vesen.

Ég hins vegar nenni ekki að blogga mikið ef þetta skildi svo ekki virka... Bið bara alla sem stadda verða á Akureyri á sunnudaginn að koma í Bogann klukkann 16:00 og horfa á okkur vinna KR-ingana. Stuðningur ykkar skiptir máli!

En þetta er bara prufa og ég vona að þetta virki!

Kveðja... Almarr

15. mars 2006

ein bisschen bloggchen

Já hmm... ætli maður verði ekki að drita niður nokkrum orðum aftur hérna svo fólk verði ekki of óþolinmótt

Samt eiginlega ekkert að frétta þannig að þetta verður meira svona hugleiðingar og eitthvað rugl bara...

Ég var að pæla um daginn í svona klukki á bloggum. Hvernig í ósköpunum verður þetta til??? Og ég fann svarið: þegar einhverjum leiðist alveg rosalega og hefur ekkert að gera nema að blogga en veit ekkert um hvað hann á að blogga, þá semur hann svona klukk (Fyrir þá sem ekki vita er ég að tala um svona spurningar sem fólk svarar á bloggum). Og þar sem þetta er eiginlega tilfellið hjá mér núna ákvað ég að semja svona klukk, verður líklegast ekkert frábært en wtf (nörda mál fyrir hver gremillinn) og svo svara ég þessu bara líka... Gjörsovel:

1. Ef þú hefðir fundið andalampan í Aladín, hefðirðu frelsað andann með síðustu óskinni?
Njaaa, efa það stórlega, ekki á hverjum degi sem maður fær 3 óskir bara sísvona! Samt kannski ef hann hefði verið mjög góður við mig...

2. Nirvana eru?
Eilífir

3. Ef þér yrði boðið hlutverk í leiknu útgáfunni af Lion King, hvern myndirðu leika og hví?
Ætli ég myndi ekki leika Múfasa, yrði held ég ágætis ljón...

4. Simpsons, Futurama, South Park eða Family Guy?
Futurama, Family Guy samt inná milli

5. Lífið er?
Dans á rósum

6. Bubbi eða KK?
KK klárlega

7. Hvaða vídeo leiga er að gera það núna?
Video Barinn

8. Miðvikudagar eru?
þreittir

9. Þessi spurningarlisti er?
Asnalegur:p

10. Hverja ætlar þú að klukka?
Svenna, Palla, Ingu Lind, Erlu, Lindu, Ingvar og Egil Bakkus


Vá hvað þetta tókst ekki nærri því vel eins og við var að búast, samt nokkrar góðar þarna inná milli. Ég bæti upp fyrir þessa færslu með þríförum innan skamms, ekkert minna sem dugir held ég!

En efnafræðipróflestur bíður mín
Písát
Almarr

1. mars 2006

afmæli, reykjavík og shortcut

jæja er ekki löngu kominn tími til þess að setja niður nokkur orð hérna? Svosem nóg búið að gerast til að blogga um en einhverra hluta vegna hef ég ekki nennt að skrifa neitt fyrr en nú (í náttúrufræði tíma)

Það sem kannski stendur upp úr síðan síðast er að ég átti afmæli síðasta laugardag. Já haldiði að kallinn sé ekki orðin átján. Nú má ég gera fullt af hlutum, t.d.
fara í Sjallann
fara á Oddvitann
fara í spilakassa
kaupa bleikt og blátt
og margt margt fleira

Afmælidagurinn var nú kannski ekki uppá marga fiska, vaknaði í Reykjavík og morgunmaturinn var á Salatbarnum. Spilaði svo leik gegn Keflavík sem fór ekki alveg sem skildi. Kíkti svo á McDonalds þar sem afgreiðslustúlkan gaf mér EKKI frían McFlurry. Svo á leiðinni heim ætlaði Ingvi driver að vera svoooo sniðugur:

Þegar við vorum sirka 2 mínútur frá Blönduós ákvað hann að taka "shortcut". Hann beygði semsagt af þjóðveginu og var svaka ánægður með sjálfan sig. Þegar hann hafði keyrt í einhverja stund áttaði hann sig svo á því að hann var villtur. Skúli vildi stoppa á bóndabæ og spurja til vegar en Ingvi tók það ekki í mál. Við keyrðum því áfram þar til við sáum bæjarljós. Í vonleysi okkar og sjálfsblekkingu vonuðumst við eftir því að þarna sæum við Varmahlíð en í ljós kom að við höfðum tekið hálftímarúnt bara til að enda í Blönduós. Semsagt klassa shortcut hjá Ingva...

Ákvað svo að skella inn þríförum hérna sem tengist sögunni svolítið. Fyrsta myndin er kort af leiðinni hans Ingva, þið sjáið að þetta er álíka gáfulegt og að taka einn eyjarfjarðahring þegar maður kemur í bæjinn austanmegin að. Næsta er fílsraninn og sú þriðja er hakan á Jay Leno. gjöriðisvovel!!



Endilega segið hvað ykkur finnst um Ingva, þrífarana og óskið mér til hamingju með sjálfstæðið...

Kveðja.
Mr. Ormarsson