24. nóvember 2007

Smáskrif

Var að lesa frábæru sögurnar Cyanide and Happiness og rakst á þetta myndband (ýtið á myndina til að sjá það):
Cyanide and Happiness, a daily webcomic
Cyanide & Happiness @ Explosm.net

Briliant!

Greetings
Massímó

18. nóvember 2007

Blogg

Titillinn á þessu bloggi var tilnefndur til íslensku bloggverðlaunanna 2007 í flokki frumlegustu titla.

Annars var ég að pæla, afhverju í fanden bloggar maður? Er það til að stytta mér stundir? Stytta lesendum stundir? Fá útrás fyrir skrifþörf eða til að hleypa út listaskrímslinu sem blundar í okkur öllum?

Ég held að eina ástæðan fyrir því að ég bloggi sé að reyna að vera fyndinn. Ég leitast eftir kommentum á borð við: HAHA, LOL, Oh þú ert svo grillaður Almarr kjáni og fleira í þeim dúr. Þannig að endilega ef ykkur finnst ég fyndinn látið mig vita. Núna hins vegar er þetta blogg það ófyndnasta sem finnst á netinu held ég þannig að þið þurfið ekkert að kommenta frekar en þið viljið.

Maður á kannski ekkert að blogga svona nývaknaður, það eina sem er fyndið við mann þá er hárgreiðslan. Og ég er ekki einu sinni með nógu mikið hár til að vera fyndinn.

Held ég skelli bara inn setningu vikunnar sem hún Harpa Baldurs á í þetta skipti, eða HB eins og hún er oftast kölluð:
"Má ég fá súkkulaðibita? Ég er á túr"

Svo ef ég hefði náð mynd af Hannesi þegar hún sagði þetta þá hefði hann átt svip vikunnar en í staðinn á Calvin hann bara:


Yfir og út (þessi kveðja var líka tilnefnd)
AO

30. október 2007

Triplets

Jæja þá er komið að því!!! Júbbídúbbidibbí

Þrífararnir mættir á svæðið, gallvaskari en nokkru sinni fyrr.
Að þessu sinni hljóma þeir svona:
Merry, Kátur hobbiti, Andri Fannar, rúnthóra og daðrari, og William Keel, einn krúttlegasti krakki á jörðinni (að sögn spekinga)!
Voila!

Vona að þið njótið vel.

Setningu vikunnar á Magnús nokkur Blöndal, oft kallaður Helmassaður Blunt:
"Símon! Maður er að heyra að þú fáir frítt á Hlölla! Eða þetta er orðið á götunni!"

Kveðja
Almarrr

23. október 2007

Hvert er heimurinn að fara?

Þetta er rosalega áhrifaríkur titill, nú lesa menn og aðrir líklega áfram í von um undraverðar pælingar mínar um stríð, barnaþrælkun og langvarandi áhrif eyðileggingu ósonslagsins.
En ég verð að valda ykkur vonbrigðum (einhver hissa á því?) því ég er ekki með neinar slíkar, þvert á móti finnst mér fínt að búa á þessari jörð. Ég hef aldrei lent í stríði, enn hef ég ekki verið seldur á þrælamarkaði og ég sé ekkert helvítis gat á ósonlaginu.

Almarr minn hvað ertu að tuða?

Veit það ekki. Alveg satt.

Hvernig væri ef ég kæmi með þrífara bráðlega? Þá yrði vonandi glatt á hjalla (Hjalli vonandi lest þú þetta).

Allvega ætla ég að lofa sjálfum mér því að blogga oftar, lesa fleiri blogg, laga síðuna mína, bæta tenglasafnið mitt og bara margt margt fleira.

Ég tek svo við veðmálum, hvenær mér tekst að klúðra öllum þessum loforðum. Það ætti að safnast stór og góður pottur!

Ottó Hólm á setningu vikunnar (Nýr liður?):
"Hún er nú svolítið óheppin með útlitið þessi"

Kveðja
Marri Blogg

1. október 2007

Glænýtt upphaf

Ég hugsa að ég sé byrjaður að blogga aftur... jeyj

Samt ekki of mikið í einu er það?

Nii

Bíðið spennt, þá verðiði fyrir vonbrigðum

Kveðja
Massímó

10. mars 2007

Úrslit úr þríförum... og að sjálfsögðu Powerade mótinu

Hæ! Hvað segiðið krakkar mínir? Eru ekki allir hressir? Nei sennilega ekki allir... ekki Þórsarar!!!

Hví skyldi það vera? Jú þeir lentu aðeins í þriðja sæti í Powerade mótinu, á eftir KA (skiljanlega, besta liðið í bænum) ooooooog Dalvík! Sem er nú svo sem ekki svo svekkjandi því að Egill Ármann er aðalmaðurinn þar á bænum. Vil því nota tækifærið og óska Dallas mönnum eins og þeir eru kallaðir hér á slóðum til hamingju með silfrið!

Oh hvað það er gaman að vinna 603

En já að öðrum úrslitum, þrífararnir maður, dsjísös kræst hvað þær kosningar voru ekkert spennandi, eða allavega ekki um fyrsta sæti. Svo virðist sem allir hafi vorkennt ákveðnum einstakling og ákveðið að kjósa hann... but whateva (ég er ekkert svekktur). Gefin voru stig á eftirfarandi hátt: 1. sæti gaf 3 stig, 2. sæti 2 stig og 3. sæti 1 stig. Ef aðeins einir þrífarar voru valdir fengu þeir 1 stig í stað þriggja. En allavega:

Bronsið hljóta með 7 stig:

Rauðhærðagengið
ooog...
Einar (&) Áskell

Silfrið hljóta með 8 stig:
þrisvarsinnumtveirfurðufuglaríflippi
oooog...
Brosmildir sykurpúðar

Og langefstir með 17 stig fá gullið, bikarinn sem er í boði slippsins og frítt út að borða fyrir einn fullorðinn ásamt barni á all-anum. Þetta eru hvorkimeiranéminnanéneittþarámilli:
Hárprúðir krúttikallar


Jæja þar hafiði þar loksins... vil þakka öllum sem tóku þátt í kosningunni og öllum þeim sem hafa kommenta þegar nýir þrífarar hafa birst... hver veit nema það styttist í næstu og verða þeir þá fyrstir í næstu 10 þrífara syrpu, vonum bara að ég lifi nógu lengi til að töfra þá fram...

Með tárin í augunum
Almarr

25. febrúar 2007

Hann á afmæli í dag

...hann á afmæli í dag
hann á afmæli hann ég
hann á afmæli í dag

ég vil óska landsmönnum til hamingju með daginn! Bendi einnig á að útlit síðunnar hefur breyst fyrir óeftirtektarsama

úrslitin úr þrífarakeppninni fara aaaaalveg að koma (í fyrsta lagi á morgun, í síðasta lagi eftir mánuð)

Lifið heil

hinn 19 ára

11. febrúar 2007

ég nenni ekkert að blogga

...geri það nú bara samt!

Af mér er ekkert að frétta síðan síðast held ég... eða jú, búinn að spila einhverja fótboltaleiki sem hafa allir gengið vel nema einn... og það þurfti akkúrat að vera fyrsti leikurinn minn sem fyrirliði með mfl. Ekki það að ég sé orðinn fyrirliði, Elmar kallinn bara veikur.

Svo er ég búinn að fara tvisvar suður, síðast í gær þangað til í dag. Við kíktum í smá keilu nokkrir þórsarar og KA-menn, að sjálfsögðu var það KA-maður sem vann... nema upphitunina reyndar, Þar var Sveinn nokkur hrikalega heppinn. Vonbrigði kvöldsins voru þó klárlega Moli sem stóð ekki undir eigin grobbsögum. Ég brillaði reyndar alls ekki, ekki fyrr en það var komið að því að rata í vesturbæjarísbúðina... ég hugsa að strákarir væru ennþá fastir í vesturbænum ef mín hefði ekki notið.

En vá hvað þetta kemst á topp 3 yfir allra leiðinlegustu blogg síðari ára, þannig að ég þegi bara núna, leyfi ykkur að taka stjórnvölin... komið með skemmtilegustu komment sem ykkur dettur í hug og Basshunter, ég treysti sérstaklega á þig!

Kveðja, Almarr

11. janúar 2007

Til hamingju með nýja árið

Ætli ég þurfi ekki að blogga smá, nenni því samt ekki... þannig að þetta verður hundleiðinleg lesning fyrir þig lesandi góður.



En já gleðilegt nýtt ár allir saman, í ár verð ég 19.. sem er ekkert merkileg tala =/ svoltið skrítið því undanfarin ár hefur alltaf eitthvað merkilegt gerst á árunum mínum:

13 ára: flutti heim frá Sviss

14 ára: fermdist

15 ára: mátti hætta að nota hjálm á hjóli

16 ára: byrjaði í MA og útivistartíminn breyttist hjá mér

17 ára: Fékk bílpróf

18 ára: Mátti fara í Sjallann

19 ára: ??????

20 ára: Má ég fara í ríkið og Amour og Kaffi Ak og eitthvað

21 árs: Eru ekki einhverjir skemmtistaðir sem hægt er að fara á?



Þannig að eins og þið sjáið: Verður rólegt afmælisár... sem er kannski gott því næsta verður rosalegt, útskrift og læti... vonandi at least!



En já úrslitin úr þrífarakosngunum verða birt fljótlega, ég hef mínar grunsemdir um hver vann en ég þarf þó að athuga hvort eitthvert svindl hafi verið í gangi..



Lifið annars bara heil og gangi ykkur MA-ingum vel í prófunum, ykkur VMA-ingum og háskólanemum vel á nýrri önn, vinnandi fólki vel í vinnunni og grunnskólanemar.. jájá þið eruð líka ágætir











powered by performancing firefox