20. september 2006

skólablogg

Sælir

Ég sit hérna í Efnafræði/eðlisfræði og bíð eftir því að komast heim. Ákvað að skella inn splunkunýjum þríförum í tilefni skólabyrjunar og eru þessir númer 8 í röðinni (styttist í tíundu, party einhver?). Í þetta skipti eru þeir svona:
Backstreetboys; heimsfrægt boyband, Húðflúr; óþekkt boyband og 5 guys; listaverk eftir hinn þekkta Jeff Bridges. Gjörsovel



Nenni samt varla að skrifa meira, er svo stressaður hérna með Hannes og Einar lesandi yfir öxlina á mér og þori ekki skrifa neitt sniðugt. Við exararnir maður, stuð í tíma!

Jæja yfir og út
Almarr

14. september 2006

Nei góðan daginn kæru landsmenn

Hvað segir fólk? Skólinn bara að byrja og Almarr byrjaður að blogga aftur! Er hægt að biðja um meira?

Ég ákvað að taka mér smá sumarfrí án þess að láta nokkurn mann vita, fólk alveg að verða brjálað á þessu ef mér skilst rétt og þunglyndi háði nokkra! En kvíðið ey lengur því hér er hann mættur, ágætari en nokkru sinni fyrr.

Til að segja frá sumrinu í stuttu máli þá var það svona: vakna, mæta í vinnu 7, vinna til hálf 5, æfing hálf 6, heim í tölvuna...
Semsagt tómt gaman. Stundum fór maður nú líka suður að keppa eða kíkti í bæinn á laugardagskveldi.

Það sem kannski stendur upp úr svona í lok sumars var Skotlands-ferðin sem ég fór í ekki fyrir alllöngu. Ég var svo heppinn að vera valinn í u-19 liðið og fórum við og kepptum tvo æfingaleikir við Skotana. Að sjálfsögðu unnum við báða, annan 3-1 og hinn 2-1. We took them to the bakery eins og maðurinn sagði.

En svona í tilefni þess að ég er kominn með nýjan síma ákvað ég að skella nokkrum myndum með í þetta blog! Sumir átta sig kannski ekki á samhenginu en þannig er mál með vexti að það er myndavél á nýja símanum, þetta er það nýjasta nýtt! En gjörsovel!


Tinni ferskur! Frekar skemmtilega greiddur og svona


S.B, Hannes og Einar hress í sjallanum


Þessir áttu sjallann! Þokkalega harðir


Magni greyið að detta út úr Rockstar, hetja landsins í dag


Sævar greyið felldi nokkur tár í tilefni þess, hetjan mín í dag

Jæja látum þetta gott heita í bili, sé ykkur í skólanum, boltanum, bænum eða hvar sem hægt er að sjá ykkur

Almarr