10. apríl 2006

Tár, bros og takkaskór

Vá maður! Áðan gerðist skemmtilegur hlutur... Fyrir þá sem ekki vissu er ég að fara til Danmerkur næsta fimmtudag í æfingarferð með KA. Og þar sem við munum að öllum líkindum æfa á grasi þar en ekki gervigrasi eins og við erum að gera þessa stundina þurfum við að taka takkaskónna okkar með. Ég var því áðan að máta gömlu takkaskónna mína til að atghuga hvort það væri ekki allt í lagi með þá og þegar ég steig í þá og labbaði aðeins um þá lék um mig svona sælutilfinning. Ég fattaði þá betur en nokkru sinni fyrr hvað ég hlakka til að komast út á gras, þó að Boginn sé stórkostlegur og allt það þá fær maður samt sem áður leið á myrkrinu og kuldanum þarna inni. Úti á grasi er þar sem fótboltinn fær að njóta sín! (sérstaklega í góða veðrinu á Íslandi)

Vá þið bjuggust örugglega við ógéðslega skemmtilegri sögu en vitiði hvað? Mér er bara alveg sama því að ég er svo kátur! Ætla að brosa í allan dag! Alveg þangað til magaæfingarnar byrja á eftir... þá hætti ég í smá stund.

Og já talandi um takkaskó þá er ég með 3 pör til sölu!!!

  1. Puma King – svartir með hvítu og gylltu
Þeir eru númer 42 úr svaka fínu leðri, alveg ónotaðir!
  1. Puma eitthvað – silfurlitaðir
Eru líka númer 42 úr einhverju klikkuðu leðri og allt það, líka alveg ónotaðir
  1. Adidas eitthvað – svartir með hvítum röndum
Þessir eru númer 41 1/3 og líta svipað út og Copa Mundial, fínt leður og eins og hinir: alveg ónotaðir!

Ástæðan fyrir því að ég er að selja þetta er að þeir eru of stórir á mig (já ég er lítill) og hef því ekkert við þá að gera. Einnig er alltaf gaman að eiga pening svo að bjóðið bara hátt! Hafið samband í símann minn, msn, hér í comments eða bara í eigin persónnu! Ég sel þá ekkert svaka dýrt þannig að ef ykkur vantar klassa skó á spottprís þá er um að gera að skoða!

En hef það ekki lengra í bili!
Almarr

3. apríl 2006

Sælir

Hobbalalla hvað það er orðin langt síðan ég bloggaði.

En hér er ég mættur ferskari en aldrei fyrr, nýkominn úr klippingu og allt. Svosem ekki mikið markvert búið að gerast undanfarið þannig að ég læt splunkuglænýja þrífara og góða sögu af honum Sævari mínum nægja í þetta skiptið!

Byrjum á þríförunum en þetta eru heimsfrægir tvífarar með einum aukabónus sem ég var að heyra af í dag, á semsagt ekki hugmyndina af þessum alveg sjálfur en hvað með það! Allir mega hjálpast að í þessum lið... Svenni gerðist að meira segja svo kræfur að herma eftir og setti hálfgerða þrífara á bloggið sitt! En ég fyrirgef honum það:)
Þrífararnir í þetta skiptið eru semsagt: Gilzenegger, kraftajötunn og frægurútafengu, Jón Gunnar, knattspyrnumaður og handklæðaþjófur og Quasimodo, bjölluhringjari og krúttlegur. Gjörsovel!


Þá er það sagan af honum Sævari mínum, ég reyndar held að hún sé svoltið svona "had to be there moment" eða "þurftir að vera þar augnablik". En hvað um það, eitthvað verðið þið að fá að lesa!

Þannig var það að við sátum í efnafræði einn miðvikudaginn, ég við hliðina á Sævari og Einar hinum megin við hann. Það tíðkast hjá okkur að í föstudagstímunum er bekknum skipt í tvennt, stelpur koma annan hvern föstudag að gera tilraun og strákarnir hina. Jóhann kennari var eitthvað að velta þessu fyrir sér og spyr því: "Eru stelpurnar ekki næsta föstudag?". "Júbb" segir bekkurinn í kór því þetta var rétt hjá karlinum. Það kemur þó einhver undrunarsvipur á Sævar og hann segir lágt: "stelpurnar?". Fannst þetta greinilega ekki stemma. Við Einar bendum honum á að stelpurnar séu þennan föstudaginn en Sævar greyið er ekki enn búinn að átta sig á þessu og hugsar sig lengi um áður en hann loksins fattar og segir: "Já þannig, ég var að hugsa um sjónvarpsþáttinn!" (sem er semsagt venjulega á laugardögum). Við Einar vorum þeir einu sem heyrðum þetta og sprungum því úr hlátri! Gerðum held ég hin í bekknum frekar pirruð því við gátum ekki einu sinni sagt þeim hvað var svona fyndið, svo mikið hlógum við.

Vona að ykkur hafi líkað þesssi saga sem sýnir ljósu hárin á Sævari, sem annars er ekki svo slæmur greyið!

Höfum þetta ekki lengra í bili, lifið heil!
Almarr