16. janúar 2006

kominn til að vera

Já vegna geysimikilla vinsælla hér í síðasta pósti er þrífaraliðurinn kominn til að vera! og allir klappa!

Þrífararnir að þessu sinni eru alveg hrikalega líkir og gætu sumir haldið að ég væri að setja sömu myndina inn þrisvar en svo er ekki. Til að forðast allan misskilning þá eru þetta semsagt (í þessari röð frá vinstri til hægri): Pálmi Rafn, knattspyrnumaður í einhverju skítaliði, Björk, söngkona og furðufugl, og Bill Gates, milljónamæringur og kyntákn.


Athugið að ef þið smellið á myndina þá stækkar hún og þannig ættuð þið að geta fundið 5 mismunandi atriði á hverri mynd!

En hef það ekki lengra í bili, stærðfræðin kallar!

Síjú
Almarr

10. janúar 2006

Þrífarar

Góðan dag

Á morgn hefjast prófin, ég ákvað því að skemmta öðrum MA-ingum og hefja nýjan lið hér sem mun nefnast þrífarar. Hversu oft ég mun uppfæra þetta verður óljóst um sinn.
En allavega fyrstu þrífararnir eru Sævar, Lloyd (Jim Carrey) og Paul McCartney:






































Eins og þið sjáið eru kauðar keimlíkir allir þrír og erfitt að greina á milli. Ég vona að ykkur líki þessi nýji liður og endilega látið mig vita hvað ykkur finnst!

Og já fólk hefur verið að kvarta yfir því að það sé flókið að commenta hér! því fylgja einfaldar leiðbeiningar fyrir þá klaufsku:
1. Ýtið á "comments"
2. Nýr Gluggi opnast
3. Í honum skrifið þið nafn, e-mail (ef þið viljið) og heimasíðu ef þið eigið slíka
4. Að lokum skrifið þið eitthvað fallegt!
5. ýtið svo á "publish"

Svona einfallt er það! Vona að sem flestir nýti sér þetta sniðuga kerfi!

Kveðja... Almarr

7. janúar 2006

Hárköttur

Sælt veri fólkið, og aðrir lesendur einnig

Í gær kom til mín ungur herramaður, Sævar hét sá, og bað mig um að gera sig fallegri. Þar sem ég er nú svo góður strákur og svona tók ég honum fagnandi og ákvað að setja hann í svona ekstrím meikófer. Til þess að hjálpa mér hóaði ég í minn digga aðstoðar mann Ottó Hólm Reynisson. Í sameiningu tókum við Sævar í smá "Haircut" og dæmi hver fyrir sig af meðfylgjandi myndum!



Athugið að myndin hentar afarvel í svona "background" á "desktopið" í tölvunni ykkar!

Ég bíð nú bara eftir tilboðum sjónvarpsfyrirtækja en þessir hæfileikar mínir henta afar vel í þætti á borð við The Swan, Extreme Makeover og Sex Inspector. Einnig gæti það hugsast að ef einhver einstaklingur hringir í mig persónulega (eða í umboðsmann minn) að ég gæti, gegn vægri greiðslu, gert eitthvað til að fríska upp á hann!

Lifið heil
Da Cutter

3. janúar 2006

Welcome to the year 2006

Og þá spurði maðurinn: "er þetta blogg ekki búið að vera?". Og hinn maðurinn svaraði: "nei það lýtur ekki út fyrir það, þrátt fyrir að Almarr sé búinn að vera hundlatur að blogga undanfarna mánuði".

Jájá sæl veriði lesendur góðir. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla. Eruði ekki hress og kát á nýju ári? Ég er alveg hreint skítsæmilegur, að vísu nenni ég varla í skólann á morgun. Aðalega vegna þess að það styttist í prófin og logbogaskil og þvíumlíkt. En aftur á móti verður nú gaman að komast í bogann aftur í fótbolta, leiðinlegt að hanga endalaust niðrí rækt eða úti í kuldanum skokkandi eins og einhver fáviti.

Jæja fyrir þá sem ekki vissu þá voru jólin núna í mánuðinum seim leið. Ég skal nú segja ykkur það að þau voru ekki amaleg, þvert á móti þá skemmti ég mér konunglega yfir hátíðirnar. Át á mig gat og borðaði svo aðeins meira og fékk mér svo ís, kökur og súkkúlaði, einu sinni fékk ég meira að segja súkkúlaðiísköku. Á milli þess sem ég var ekki að borða hafði ég það notalegt fyrir framan sjónvarpið eða að rústa Ottó og Sævari í Trivial, rosalegt hvað 2 frændur geta verið vitlausir.

En ætli ég telji þetta ekki gott í bili, bendi ykkur á það í endann að ég uppfærði tenglalistann og ef þið viljið komast þangað verðið þið að vera góð við mig!

Kveðja...
Almarr!

P.s. væri ekki sniðugt svona áramótaheit að lofa að blogga meira??? eða nei sleppum því.